Fara í innihald

Stjarnfræðieining

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Gráa línan sýnir fjarlægðina frá jörðu til sólar sem er að meðaltali ein stjarnfræðieining.

Stjarnfræðieining (enska: astronomical unit) er mælieining fyrir fjarlægð notuð í stjörnufræði, skammstöfuð SE (enska: AU). Stjarnfræðieining miðast við meðalfjarlægð milli jarðar og sólar, eða meðalgeisla jarðbrautarinnar. Ein stjarnfræðieining er skilgreind sem 149.597.870.700 metrar (um 150 milljón kílómetrar).[1][2]

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. ↑ „Stjarnfræðieining“. Stjörnufræðivefurinn. Sótt 20.10.2026.
  2. ↑ Frédérique Auffret (8. mars 2013). „The new definition of the astronomical unit: exactly 149 597 870 700m“. Observatoire de Paris.
  Þessi stjörnufræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.