Fara í innihald

Los Angeles Clippers

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Los Angeles Clippers
DeildNBA
UndirdeildVesturdeild
RiðillKyrrahafsriðill
Stofnað1970
SagaBuffalo Braves
1970–1978
San Diego Clippers
1978–1984
Los Angeles Clippers
1984–nú
VöllurIntuit Dome
StaðsetningInglewood, Kalifornía
Liðs litirNavy blue, ember red, Pacific blue, silver
       
EigendurSteve Ballmer
VenslaliðSan Diego Clippers
Vefsíðawww.nba.com/clippers

Los Angeles Clippers er körfuboltalið frá Los Angeles í Kaliforníu sem spilar í NBA deildinni.[1]

Félagið var stofnað árið 1970 í Buffalo í New York-fylki áður en það flutti til Kaliforníu, fyrst til San Diego og svo Los Angeles. Clippers nafnið er tilvísun í skip á San Diego-flóa. Liðið hefur lengi fallið í skuggann á Lakers þar sem árangur liðsins hefur verið dapur lengst af. Liðið komst í fyrsta sinn í undanúrslit vesturdeildar árið 2021.[1]

Í Apríl 2026 tryggði liðið sér sitt 15. sigurtímabil í röð og það fjórða lengsta í sögu deildarinnar þar sem lið hefur unnið meira en helming leikja sinna.[2]

Hneykslismál

[breyta | breyta frumkóða]

Árið 2014 var Donald Sterling, eigandi félagsins frá 1981, neyddur til að selja félagið eftir að hljóðupptaka með kynþáttafordómafullum ummælum hans birtist opinberlega. Á upptökunni, sem TMZ birti, heyrðist Sterling ávíta vinkonu sína fyrir að birta myndir af sér með afrísk‑amerískum einstaklingum, þar á meðal Magic Johnson. Birting upptökunar vakti víðtæka gagnrýni, leiddi til þess að styrktaraðilar sögðu upp samningum og leikmenn íhuguðu mótmælaaðgerðir.

Í kjölfarið setti NBA-deildin Sterling í ævilangt bann, sektaði hann um 2,5 milljónir dala og hóf ferli til að þvinga fram sölu félagsins. Eiginkona hans, Shelly Sterling, tók yfir stjórn félagsins og í júní 2014 samþykkti hún kauptilboð Steve Ballmer upp 2 milljarða dala, sem þá var hæsta söluverð í sögu deildarinnar. Málið hafði veruleg áhrif á umræðu um kynþáttafordóma og ábyrgð eigenda innan NBA.[3]

Í september 2026, fékk liðið eina þyngstu refsingu sem NBA-deildin hefur gefið eftir að upp komst um að liðið hefði borgað Kawhi Leonard undir borðið til að komast framhjá launaþakinu í deildinni. Félagið var svipt valrétti í nýliðavalinu í fimm ár, frá 2029 til 2033, ásamt því að vera sektað um 30 milljónir bandaríkjadala. Eigandi liðsins, Steve Ballmer, og rekstrarstjórinn Gillian Zucker voru settir í eins árs bann og yfirmaður körfuboltamála hjá liðinu, Lawrence Frank, í hálft ár. Sjálfur fékk Leonard 700.000 dollara sekt og föðurbróðir hans, Dennis Robertson, fékk lífstíðarbann frá deildinni.[4][5]

Þekktir leikmenn

[breyta | breyta frumkóða]
Viðmið

Til þess að birtast á þessum lista þarf leikmaður að uppfylla eitt af eftirfarandi:

  • Leikið að minnsta kosti þrjú tímabil fyrir liðið.
  • Sett félagsmet eða unnið einstaklingsverðlaun með liðinu.
  • Leikið að minnsta kosti einn landsleik á ferlinum.

Þekktir þjálfarar

[breyta | breyta frumkóða]

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. 1 2 „Los Angeles Clippers | NBA, Basketball, History, & Notable Players | Britannica“. www.britannica.com (enska). Encyclopedia Britannica. 4 maí 2025. Sótt 14 júní 2025.
  2. ↑ „Clippers collect 15th straight winning season with play-in preview win over Warriors“. The Sporting Tribune (enska). 13 apríl 2026. Sótt 20. september 2026.
  3. ↑ Ramona Shelburne (20 ágúst 2019). „When the Donald Sterling saga rocked the NBA -- and changed it forever“. www.espn.com. Sótt 20. september 2026.
  4. ↑ Valur Páll Eiríksson (9. mars 2026). „Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu“. Vísir.is. Sótt 20. september 2026.
  5. ↑ „NBA announces penalties and findings arising from investigation of LA Clippers and Kawhi Leonard“. NBA.com (enska). Sótt 20. september 2026.